BL+ The Cream 5 ml
Ríkulegt og nærandi andlitskrem þróað til að veita húðinni raka, draga úr sýnileika fínna lína og auka þéttleika. Formúla BL+ The Cream inniheldur einstaka samsetningu lífvirkra efna sem næra, auka raka, örva kollagenframleiðslu í húð, draga úr niðurbroti kollagens, slétta áferð og endurheimta þéttleika húðarinnar ásamt því að styrkja varnarlag hennar.
Virkni knúin áfram af okkar einstaka BL+ COMPLEX.
BENEFITS
Húðin verður þéttari, sléttari og rakafyllt. Sýnileiki fínna lína og hrukkna minnkar samhliða aukinni mýkt og náttúrulegum ljóma.
- Ríkuleg og silkimjúk áferð
- Prófað af húðlæknum
- Án ilmefna
- Rekjanleg innihaldsefni valin af ábyrgð
- Hentar grænkerum
- Hentar venjulegri og þurri húð
INGREDIENTS
Lykilefni:
BL+ COMPLEX örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar. Við hönnun á BL+ COMPLEX er notuð náttúruleg fosfólípíðferja til þess að koma einstakri blöndu af einkaleyfisvörðum örþörungum og kísil Bláa Lónsins djúpt niður í húðlögin til að hámarka virkni. Einstakt innihaldsefni á heimsvísu sem finnst einungis í BL+ húðvörulínunni.
JARÐSJÓR BLÁA LÓNSINS endurnærir húðina með nauðsynlegum steinefnasöltum og eykur þannig heildarvirkni formúlunnar.
NÍASÍNAMÍÐ, vatnsleysanlegt B3-vítamín, hefur margvíslegan ávinning. Fyrirbyggir skemmdir af völdum útfjólublárra geisla, styrkir varnarlag húðarinnar auk þess að bæta húðtón og áferð.
SERAMÍÐ veita raka og bæta lípíðforða en þau fyrirfinnast náttúrulega í húðinni. Þau gegna mikilvægu hlutverki í varnarlagi húðarinnar og gera hana mýkri og sléttari.
SKVALÍN hjálpar til við að innsigla raka í húðinni, nærir og endurheimtir mýkt.
Öll innihaldsefni:
WATER (AQUA), PROPANEDIOL, DECYL OLEATE, GLYCERIN, SQUALANE, CALCIUM ALUMINUM BOROSILICATE, NIACINAMIDE, PENTYLENE GLYCOL, SEA WATER (MARIS AQUA), UNDECANE, POLYGLYCERYL-4 OLEATE, POLYGLYCERYL-6 OLEATE, TRIDECANE, ECTOIN, MAGNESIUM STEARATE, MAGNESIUM SULFATE, POLYHYDROXYSTEARIC ACID, PRUNUS DOMESTICA SEED OIL, SODIUM CHLORIDE, SODIUM HYALURONATE, SODIUM LEVULINATE, OLEA EUROPAEA (OLIVE) FRUIT OIL, SODIUM ANISATE, TITANIUM DIOXIDE (CI 77891), TOCOPHEROL, BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, CERAMIDE NP, GLYCINE SOJA (SOYBEAN) OIL, MICA (CI 77019), LECITHIN, ALGAE EXTRACT, SILICA, HYDROGENATED PALM GLYCERIDES CITRATE, CITRIC ACID, SODIUM HYDROXIDE, HELIANTHUS ANNUUS (SUNFLOWER) SEED OIL.
HOW TO USE
- Notið morgna og kvölds, eftir hreinsun, á andlit og háls.
- Yfir daginn mælum við með að sólarvörn sé borin á húðina á eftir kreminu.
FAQ
Hentar BL+ The Cream minni húðgerð?
BL+ The Cream er tilvalið fyrir venjulegar, þurrar og/eða viðkvæmar húðgerðir. Formúlan stíflar ekki svitaholur.
Hvar kemur BL+ The Cream inn í húðrútínu mína?
Berðu það á hreint andlit og háls, kvölds og morgna. Tilvalið er að nota BL+ The Serum á undan.
Hvernig er áferðin?
BL+ The Cream er ríkulegt, silkimjúkt og veitir vellíðan. Formúlan er ilmefnalaus.
Hversu lengi endast 50 ml og 15 ml krukkurnar?
50 ml krukkan endist í 1-2 mánuði miðað við að kremið sé borið á tvisvar á dag. 15 ml krukkan endist í 2-3 vikur miðað við að kremið sé borið á tvisvar á dag.
Hvert er geymsluþol vörunnar?
Eftir að varan hefur verið opnuð er geymsluþolið sex mánuðir. Til að tryggja gæði vörunnar skal forðast að krukkan verði fyrir miklum hitabreytingum – hita og kulda.