Bláa Lónið hefur boðið upp á meðferð við sóríasis síðan 1994. Fer hún fram í Lækningalind Bláa Lónsins í Svartsengi og byggir á einstakri virkni jarðsjávarins. Meðferðin er náttúruleg og er jarðsjórinn nýttur með sjálfbærum hætti í því markmiði að bæta lífsgæði.