VEGLEGIR KAUPAUKAR OG FRÍ HEIMSENDING ÞEGAR VERSLAÐ ER FYRIR 9.900 EÐA MEIRA.

Karfa 0

Frábært! Þú færð fría heimsendingu Þú ert 95 kr frá því að fá fría heimsendingu
Engar fleiri vörur í boði til kaupa

Verð á vörum Fylgir frítt
Sendingarkostnaður, skattar og afsláttarkóðar eru reiknaðir við kaup

Karfan þín er tóm

BL+ Eye Serum

Áhrifaríkt augnserum sem veitir öflugan raka, vinnur á fínum línum og dregur úr einkennum þreytu og þrota á viðkvæmu augnsvæðinu. BL+ Eye Serum inniheldur einstaka samsetningu lífvirkra innihaldsefna sem vinna á dökkum baugum, örva kollagen framleiðslu í húð, draga úr niðurbroti kollagens auk þess að verja húðina gegn umhverfismengun með andoxunarvirkni. Með reglulegri notkun verður augnsvæðið rakafyllt, þéttara, auk bjartara og frísklegra ásýndar.

Virkni knúin áfram af okkar einstaka BL+ COMPLEX.

17.900 kr
ÁVINNINGUR

Viðkvæmt augnsvæðið verður bjartara, frísklegra, þéttara og fær mikinn raka djúpt niður í húðlögin. Formúlan dregur úr sýnileika fínna lína, hrukkna og þreytumerkja auk þess að minnka þrota.  

  • Kælandi stálrúlla frískar, tryggir auðvelda notkun
  • Létt og fíngerð áferð
  • Prófað af húðlæknum
  • Án ilmefna
  • Rekjanleg innihaldsefni valin af ábyrgð
  • Hentar öllum húðgerðum og grænkerum
KLÍNÍSKAR NIÐURSTÖÐUR

Niðurstöður klínískrar rannsóknar eftir 8 vikna notkun, framkvæmd undir eftirliti húðlækna:

Þroti 

64% notenda höfðu sýnilega minnkun á þrota/pokum undir augum 

Dökkir baugar

67% notenda höfðu sýnilega minnkun á dökkum baugum

Raki

100% notenda sýndu marktæka hækkun á rakastigi húðar þegar mælt var með Corneometer®  

Þéttleiki 

Notendur höfðu marktæka aukningu í þéttleika húðar sem metið var af húðlækni  

Hrukkur 

Notendur höfðu verulega minnkun á dýpt hrukkna 30 mínútum eftir notkun (stakt skipti) sem mælt var með Primos 3D.  

INNIHALDSEFNI

Lykilefni: 

BL+ COMPLEX örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar. Við hönnun á BL+ COMPLEX er notuð náttúruleg fosfólípíðferja til þess að koma einstakri blöndu af einkaleyfisvörðum örþörungum og kísil Bláa Lónsins djúpt niður í húðlögin til að hámarka virkni. Einstakt innihaldsefni á heimsvísu sem finnst einungis í BL+ húðvörulínunni. 

JARÐSJÓR BLÁA LÓNSINS hleður húðina nauðsynlegum steinefnasöltum og eykur heildarvirkni formúlunnar.

C-VÍTAMÍN gerir húðina bjartari og hlutleysir sindurefni.

ÞRJÁR GERÐIR HÝALÚRÓNSÝRA tryggja rakagjöf niður í dýpstu húðlögin.

LAKKRÍSRÓT minnkar sýnileika dökkra bauga með því að draga úr framleiðslu melaníns.

KOFFÍN dregur úr þrota og gerir húðina bjartari.

Öll innihaldsefni: 

WATER (AQUA), SEA WATER (MARIS AQUA), GLYCERIN, PENTYLENE GLYCOL, SODIUM HYALURONATE, ASCORBYL GLUCOSIDE, SODIUM LEVULINATE, CHONDRUS CRISPUS EXTRACT, SODIUM ANISATE, LECITHIN, CAMELLIA SINENSIS LEAF EXTRACT, LACTOBACILLUS FERMENT LYSATE FILTRATE, PUNICA GRANATUM EXTRACT, SODIUM HYDROXIDE, PHENETHYL ALCOHOL, CHLORELLA VULGARIS EXTRACT, BIOSACCHARIDE GUM-1, ALGAE EXTRACT, ALTEROMONAS FERMENT EXTRACT, LACTOBACILLUS FERMENT, SILICA, CAFFEINE, GLYCYRRHIZA GLABRA (LICORICE) ROOT EXTRACT, SODIUM CARRAGEENAN, GLYCERYL CAPRYLATE, JANIA RUBENS EXTRACT, CITRIC ACID, TOCOPHEROL.

NOTKUN
  • Notið morgna og kvölds eftir hreinsun.
  • Setjið kælandi stálrúlluna undir miðja augnbrúnina og dragið hana í hálfhring; út að ytri augnkrók og áfram undir augað.
  • Þrýstu augnseruminu gætilega inn í húðina með baugfingri.
  • Ráð: Notaðu BL+ Eye Serum yfir daginn til að fríska upp á þreytt augnsvæðið eða draga úr þrota.
ALGENGAR SPURNINGAR

Þarf ég bæði BL+ The Serum og Eye Serum?

Formúlurnar eru ólíkar þar sem BL+ Eye Serum inniheldur virk efni sem vinna sérstaklega gegn þreytumerkjum; dökkum baugum og þrota, sem eru algeng á viðkvæmu augnsvæðinu. Við mælum með BL+ The Serum fyrir allt andlitið. Það er tilvalið að nota báðar vörurnar samtímis, kvölds og morgna – fullkomin samsetning sem vinnur gegn öldrunareinkennum húðarinnar. 

Hentar BL+ Eye Serum minni húðgerð? 

BL+ Eye Serum hentar öllum húðgerðum. Ef þú hefur mjög viðkvæma húð, þá mælum við með að prófa vöruna fyrst á litlu húðsvæði. Hættu notkun og hafðu samband við húðlækni ef erting kemur fram. 

Hvernig er áferðin?

BL+ Eye Serum er fíngerð, létt og ilmefnalaus formúla. Klístrast ekki og gengur hratt inn í húðina. 

Hversu lengi endist glasið?

10 ml glasið endist í 3-4 mánuði ef varan er notuð tvisvar á dag. 

Hvert er geymsluþol vörunnar?

Eftir að varan hefur verið opnuð er geymsluþolið sex mánuðir. Til að tryggja gæði vörunnar skal forðast að flaskan verði fyrir miklum hitabreytingum – hita og kulda. 

 

BL+ Eye Serum

17.900 kr

Svipaðar vörur