Frí heimsending á pöntunum yfir 9.900 kr.

Glow to Go

Tilbúin(n) að prófa vinsælustu vörurnar frá Blue Lagoon Skincare? Glow to Go settið inniheldur okkar margverðlaunuðu vörur í hentugum ferðastærðum – fullkomið tækifæri til að uppgötva nýja uppáhalds húðvöru. Ferðasettið kemur í fallegri blárri snyrtitösku með rennilás og inniheldur: BL+ The Cream Light (5 ml), BL+ The Serum (5 ml), BL+ Eye Serum (5 ml), BL+ Eye Cream (5 ml) og Silica Mask (10 ml). Tilvalið húðvörusett fyrir ferðalagið.

19.900 kr (27.900 kr VIRÐI)
ÁVINNINGUR

Settið inniheldur:

BL+ THE CREAM LIGHT
Létt og áhrifaríkt andlitskrem þróað til að gefa húðinni langvarandi raka, koma á jafnvægi og draga úr sýnileika fínna lína.

BL+ THE SERUM
Öflug formúla sem gefur húðinni góðan raka og bjartara yfirbragð, ásamt því að draga úr öldrunareinkennum húðar.

BL+ EYE SERUM
Áhrifaríkt augnserum sem veitir öflugan raka, vinnur á fínum línum og dregur úr einkennum þreytu og þrota á viðkvæmu augnsvæðinu.

BL+ EYE CREAM
Háþróað augnkrem sem sléttir, þéttir og verndar viðkvæmt augnsvæðið. Silkimjúkt og nærandi krem sem gengur hratt inn í húðina og veitir endurnýjað og ljómandi yfirbragð.

SILICA MUD MASK
Hinn margrómaði hvíti andlitsmaski sem djúphreinsar og styrkir húðina. Gefur frísklegt yfirbragð og dregur úr sýnileika svitahola.

INNIHALDSEFNI

Lykilinnihaldsefni:

BL+ COMPLEX örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar.

JARÐSJÓR BLÁA LÓNSINS endurnærir húðina með nauðsynlegum steinefnasöltum og eykur þannig heildarvirkni formúlunnar.

KÍSILL BLÁA LÓNSINS hefur djúphreinsandi, náttúrulega leireiginleika sem draga óhreinindi úr húðinni og bæta yfirbragð hennar.

Sjá öll innihaldsefni á eftirtöldum vörusíðum:

BL+ THE CREAM LIGHT
BL+ THE SERUM
BL+ EYE SERUM
BL+ EYE CREAM
SILICA MUD MASK

NOTKUN
  • Morgna og kvölds: Berið BL+ The Serum á hreina húð, fylgdu á eftir með BL+ The Cream Light. Rúllaðu BL+ Eye Serum í kringum augun og fylgdu á eftir með BL+ Eye Cream.
  • 1-2svar í viku: Berið Silica Mud Mask ríkulega jafnt á hreina húð. Forðist augnsvæðið. Látið bíða á húðinni í 5-10 mínútur. Skolið af með volgu vatni.
ALGENGAR SPURNINGAR

Hvert er geymsluþol vörunnar?

Eftir að varan hefur verið opnuð er geymsluþolið sex mánuðir. Til að tryggja gæði vörunnar skal þess gætt að umbúðirnar verði ekki fyrir miklum hitabreytingum – bæði hita og kulda.

Glow to Go

19.900 kr

Products you may like

Close dialog

Blue Lagoon Skincare

Fáðu 15% afslátt af stökum vörum með fyrstu pöntun

Please select your home region