FRÍ HEIMSENDING OG KAUPAUKI ÞEGAR VERSLAÐ ER FYRIR 9.900 EÐA MEIRA.

Karfa 0

Frábært! Þú færð fría heimsendingu You are 95 kr away from free shipping.
Engar fleiri vörur í boði til kaupa

Verð á vörum Fylgir frítt
Sendingarkostnaður, skattar og afsláttarkóðar eru reiknaðir við kaup

Karfan þín er tóm

BL+ Eye Cream

Háþróað augnkrem sem sléttir, þéttir og verndar viðkvæmt augnsvæðið. BL+ Eye Cream inniheldur einstaka samsetningu lífvirkra innihaldsefna sem örva kollagenframleiðslu í húð og draga úr ásýnd fínna lína og hrukkna. Silkimjúkt og nærandi krem sem gengur hratt inn í húðina og veitir endurnýjað og ljómandi yfirbragð.

Virkni knúin áfram af okkar einstaka BL+ COMPLEX.

15.900 kr
Size15 ml
ÁVINNINGUR

Viðkvæmt augnsvæðið verður þéttara, sléttara og betrumbætt. Sýnileiki fínna lína og hrukkna minnkar auk þess sem húðin verður nærðari og ljómameiri. 

  • Ríkuleg og nærandi áferð
  • Gengur samstundis inn í húðina og undirbýr hana fyrir förðun
  • Prófað af húðlæknum
  • Án ilmefna
  • Rekjanleg innihaldsefni valin af ábyrgð
  • Hentar öllum húðgerðum og grænkerum
KLÍNÍSKAR NIÐURSTÖÐUR

Niðurstöður úr 8 vikna klínískri rannsókn, framkvæmd undir eftirliti húðlækna: 

Varnarlag

Notendur höfðu allt að 39% bætingu í virkni varnarlags húðar sem metið var með mælingu á rakatapi (TWL) 

Þéttleiki

Notendur höfðu allt að 31% bætingu á þéttleika húðar sem metið var með Cutometer® 

Teygjanleiki

Notendur höfðu allt að 26% bætingu í teygjanleika húðar sem metið var með Cutometer® 

Hrukkur

Notendur höfðu allt að 28% minnkun á dýpt hrukkna sem metið var með Primos 3D-mælingartæki

Niðurstöður neytendakönnunar eftir 8 vikna notkun BL+ Eye Cream: 

Raki

100% notenda voru sammála að varan bætti rakastig húðar 

Næring

97% notenda voru sammála að húðin við augun væri ríkulega nærð 

Fínar línur og hrukkur

91% notenda voru sammála að varan dragi úr sýnileika fínna lína og hrukkna  

Þéttleiki

94% notenda voru sammála að húð augnsvæðisins virtist þéttari  

Slétt áferð

94% notenda voru sammála að húð augnsvæðisins virtist sléttari  

Róandi áhrif

97% notenda voru sammála að varan hefði róandi áhrif á húð þeirra.  

INNIHALDSEFNI

Lykilefni: 

BL+ COMPLEX örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar. Við hönnun á BL+ COMPLEX er notuð náttúruleg fosfólípíðferja til þess að koma einstakri blöndu af einkaleyfisvörðum örþörungum og kísil Bláa Lónsins djúpt niður í húðlögin til að hámarka virkni. Einstakt innihaldsefni á heimsvísu sem finnst einungis í BL+ húðvörulínunni.

JARÐSJÓR BLÁA LÓNSINS endurnærir húðina með nauðsynlegum steinefnasöltum og eykur þannig heildarvirkni formúlunnar.

BAKÚSÍÓL 0.5%, innihaldsefni unnið úr fræjum Psoralea coryfolia-plöntunnar, hefur margvíslegan ávinning sem svipar til virkni retínóls. Það þéttir húðina, bætir áferð, húðtón og eykur ljóma.

NÍASÍNAMÍÐ, vatnsleysanlegt B3-vítamín, hefur margvíslegan ávinning. Fyrirbyggir skemmdir af völdum útfjólublárra geisla, styrkir varnarlag húðarinnar auk þess að bæta tón og áferð.

PANTENÓL, vatnsleysanlegt B5-vítamín, veitir raka og sefar húðina.

SERAMÍÐ veita raka og bæta lípíðforða en þau fyrirfinnast náttúrulega í húðinni. Þau gegna mikilvægu hlutverki í varnarlagi húðarinnar og gera hana mýkri og sléttari. 

SKVALÍN hjálpar til við að innsigla raka í húðinni, nærir og endurheimtir mýkt.

Öll innihaldsefni: 

WATER (AQUA), PROPANEDIOL, LAURYL LAURATE, SQUALANE, PENTYLENE GLYCOL, C10-18 TRIGLYCERIDES, C15-19 ALKANE, CETYL PALMITATE, NIACINAMIDE, GLYCERIN, SEA WATER (MARIS AQUA), DECYL OLEATE, CALCIUM SODIUM BOROSILICATE, CETEARYL ALCOHOL, SUCROSE POLYSTEARATE, BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, LAUROYL LYSINE, MICROCRYSTALLINE CELLULOSE, SODIUM STEAROYL GLUTAMATE, SODIUM LEVULINATE, BAKUCHIOL, BISABOLOL, ECTOIN, GLYCERYL STEARATE, PRUNUS DOMESTICA SEED OIL, CITRIC ACID, PANTHENOL, CELLULOSE GUM, XANTHAN GUM, P-ANISIC ACID, TOCOPHEROL, CERAMIDE NP, SODIUM HYDROXIDE, CHLORELLA VULGARIS EXTRACT, OLEA EUROPAEA (OLIVE) OIL UNSAPONIFIABLES, LECITHIN, GENTIANA LUTEA ROOT EXTRACT, PANTOLACTONE, ALGAE EXTRACT, SILICA, HYDROGENATED VEGETABLE GLYCERIDES CITRATE.

NOTKUN
  • Notið morgna og kvölds eftir hreinsun.
  • Berið lítið magn gætilega með baugfingri í hálfhring í kringum augun.
  • Byrja við innri augnkrók undir auganu og að ytri augnkrók. Þaðan upp undir augnbein.
ALGENGAR SPURNINGAR

Hentar BL+ Eye Cream minni húðgerð? 

BL+ Eye Serum hentar öllum húðgerðum.  

Hvar kemur BL+ Eye Cream inn í húðrútínu mína?

Berðu á hreint augnsvæðið kvölds og morgna. Ef þú notar BL+ Eye Serum, berðu það fyrst á húðina og svo BL+ Eye Cream yfir.  

Hvernig er áferðin?

BL+ Eye Cream er ríkuleg, nærandi og ilmefnalaus formúla.  

Hversu lengi endast 15 ml og 5 ml krukkurnar?

15 ml krukkan endist í 3-4 mánuði miðað við að augnkremið er borið tvisvar sinnum á dag. 5 ml krukkan endist í 1-2 mánuði miðað við að borið er tvisvar á dag.  

Hvert er geymsluþol vörunnar?

Eftir að varan hefur verið opnuð er geymsluþolið sex mánuðir. Til að tryggja gæði vörunnar skal forðast að flaskan verði fyrir miklum hitabreytingum – hita og kulda. Mikilvægt er að festa lokið á krukkunni vandlega.  

 

BL+ Eye Cream

15.900 kr

Svipaðar vörur