Hátíðarklúturinn fylgir öllum pöntunum yfir 25.000 kr.

Karfa 0

Frábært! Þú færð fría heimsendingu Þú ert 95 kr frá því að fá fría heimsendingu
Engar fleiri vörur í boði til kaupa

Verð á vörum Fylgir frítt
Sendingarkostnaður, skattar og afsláttarkóðar eru reiknaðir við kaup

Karfan þín er tóm

Algae Bioactive Concentrate Face Oil

Öflug og náttúruleg andlitsolía sem endurnærir húðina samstundis. Þróuð með hinum einstöku lífvirku örþörungum Bláa Lónsins sem búa yfir miklu magni næringarefna og vítamína, til að styðja við endurnýjun húðarinnar. Notaðu andlitsolíuna daglega til að auka ljóma húðarinnar og stuðla að sléttara og heilbrigðara yfirbragði hennar.

15.900 kr
ÁVINNINGUR

Algae Bioactive Concentrate Face Oil er silkimjúk andlitsolía sem nærir og sléttir húðina, eykur ljóma og dregur úr sýnileika fínna lína og hrukkna.

  • Létt áferð
  • Prófað af húðlæknum
  • Án ilmefna
  • Rekjanleg innihaldsefni valin af ábyrgð
  • Hentar öllum húðgerðum og grænkerum

INNIHALDSEFNI

Lykilefni: 

ÖRÞÖRUNGAR BLÁA LÓNSINS hafa nærandi, andoxandi og endurnýjandi eiginleika. Einkaleyfisvarðir blágrænþörungarnir finnast í einstöku vistkerfi Bláa Lónsins en þeir örva, varðveita og vernda kollagenforða húðarinnar. 

Öll innihaldsefni: 

OLUS OIL (VEGETABLE OIL), CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, ARGANIA SPINOSA KERNEL OIL*, SIMMONDSIA CHINENSIS (JOJOBA) SEED OIL*, OCTYLDECANOL, OENOTHERA BIENNIS (EVENING PRIMROSE) OIL*, ALGAE EXTRACT, TOCOPHEROL. 

*Innihaldsefni úr lífrænni ræktun. 23% af innihaldsefnum eru úr lífrænni ræktun. 100% af innihaldsefnum eru af náttúrulegum uppruna.

NOTKUN
  • Berið 4-6 dropa á hreina og raka húð, andlit og háls, á hverju kvöldi eða eftir þörfum.
  • Strjúkið olíunni mjúklega og þrýstið inn í húðina til að hámarka virknina.
ALGENGAR SPURNINGAR

Hvaðan koma örþörungar Bláa Lónsins?   

Einkaleyfisvörðu örþörungar Bláa Lónsins eru blágrænþörungar sem eiga uppruna sinní einstöku vistkerfi Bláa Lónsins. Ræktaðir á sjálfbæran hátt með líftækniaðferðum í rannsóknar-og þróunarsetri Bláa Lónsins í yfir tvo áratugi. 

Hentar Algae Bioactive Face Oil húðgerð minni?

Algae Bioactive Face Oil hentar öllum húðgerðum.  

Hvernig er áferðin?

Algae Bioactive Face Oil er létt og silkimjúk formúla sem gengur hratt inn í húðina.  

Hversu lengi endist 30 ml flaskan?

30 ml flaskan endist í 2-3 mánuði, miðað við að borið er á húðina tvisvar sinnum á dag.  

Hvert er geymsluþol vörunnar?

Eftir að varan hefur verið opnuð er geymsluþolið sex mánuðir. Til að tryggja gæði vörunnar skal forðast að krukkan verði fyrir miklum hitabreytingum – hita og kulda. 

Algae Bioactive Concentrate Face Oil

15.900 kr

Svipaðar vörur