FRÍ HEIMSENDING OG KAUPAUKI ÞEGAR VERSLAÐ ER FYRIR 9.900 EÐA MEIRA.

Karfa 0

Frábært! Þú færð fría heimsendingu You are 95 kr away from free shipping.
Engar fleiri vörur í boði til kaupa

Verð á vörum Fylgir frítt
Sendingarkostnaður, skattar og afsláttarkóðar eru reiknaðir við kaup

Karfan þín er tóm

BL+ Retinol Cream 0.3%

Endurnýjandi húðmeðferð sem hönnuð er til að vinna gegn öldrunarmerkjum og bæta áferð húðarinnar. BL+ Retinol Cream 0.3% inniheldur einstaka samsetningu lífvirkra efna sem hraða endurnýjunarferli húðfrumna, örva kollagenframleiðslu í húð, draga úr niðurbroti kollagens og lágmarka sýnileika hrukkna, svitahola og misfellna.  

Virkni knúin áfram af okkar einstaka BL+ COMPLEX. 

16.900 kr
ÁVINNINGUR

Með reglulegri notkun verður húðin sléttari og ljómameiri ásamt endurnýjaðri áferð. Ásýnd fínna lína og hrukkna minnkar..  

  • Prófað af húðlæknum
  • Án ilmefna
  • Rekjanleg innihaldsefni valin af ábyrgð
  • Hentar grænkerum
  • Hentar venjulegum, blönduðum og olíukenndum húðgerðum
  • Tilvalið fyrir þau sem eru að nota retínól í fyrsta sinn
  • Forðist notkun á meðgöngu
KLÍNÍSKAR NIÐURSTÖÐUR

INNIHALDSEFNI

Lykilefni: 

BL+ COMPLEX örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar. Við hönnun á BL+ COMPLEX er notuð náttúruleg fosfólípíðferja til þess að koma einstakri blöndu af einkaleyfisvörðum örþörungum og kísil Bláa Lónsins djúpt niður í húðlögin til að hámarka virkni. Einstakt innihaldsefni á heimsvísu sem finnst einungis í BL+ húðvörulínunni.

JARÐSJÓR BLÁA LÓNSINS hleður húðina nauðsynlegum steinefnasöltum og eykur heildarvirkni formúlunnar.

RETÍNÓL 0.3% mýkir fínar línur, bætir áferð og jafnar yfirbragð húðarinnar með því að hraða frumuendurnýjun.

Öll innihaldsefni: 

WATER (AQUA), PROPANEDIOL, GLYCERIN, LAURYL LAURATE, TAPIOCA STARCH, PENTYLENE GLYCOL, SEA WATER (MARIS AQUA), GLYCINE SOJA (SOYBEAN) OIL, VEGETABLE OIL (OLUS OIL), UNDECANE, MAGNESIUM SULFATE, SQUALANE, POLYGLYCERYL-4 OLEATE, TRIDECANE, POLYGLYCERYL-6 OLEATE, PRUNUS DOMESTICA SEED OIL, MAGNESIUM STEARATE, POLYHYDROXYSTEARIC ACID, ECTOIN, SODIUM HYALURONATE, SODIUM LEVULINATE, OLEA EUROPAEA (OLIVE) FRUIT OIL, RETINOL, CITRIC ACID, SODIUM ANISATE, TITANIUM DIOXIDE (CI 77891), TOCOPHEROL, BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, CERAMIDE NP, MICA (CI 77019), LECITHIN, ALGAE EXTRACT, SILICA, SODIUM HYDROXIDE, HELIANTHUS ANNUUS (SUNFLOWER) SEED OIL

NOTKUN
  • Notið morgna og kvölds eftir hreinsun.
  • Setjið kælandi stálrúlluna undir miðja augnbrúnina og dragið hana í hálfhring; út að ytri augnkrók og áfram undir augað.
  • Þrýstu augnseruminu gætilega inn í húðina með baugfingri.
  • Ráð: Notaðu BL+ Eye Serum yfir daginn til að fríska upp á þreytt augnsvæðið eða draga úr þrota.
ALGENGAR SPURNINGAR

Hentar BL+ Retinol Cream 0.3% minni húðgerð?
BL+ Retinol Cream 0.3% hentar venjulegum, blönduðum og olíukenndum húðgerðum. Þessi formúla hentar bæði þeim sem nota retínól reglulega og þeim sem eru að nota retínól í fyrsta sinn.

Hvar kemur BL+ Retinol Cream 0.3% inn í húðrútínu mína?
Berðu það á hreint andlit og háls að kvöldi til. Fylgdu því eftir með rakakremi ef þess þarf. Notaðu sólarvörn á daginn þar sem retínól eykur ljósnæmi.

Getur retínól valdið ertingu?
BL+ Retinol Cream 0.3% er þróað til að hámarka virkni á meðan óþægindi sem kunna að fylgja notkun retínóls, líkt og ertingur, roði og flögnun, eru lágmörkuð.

Hvernig er áferðin?
BL+ Retinol Cream 0.3% er silkimjúkt og ilmefnalaust krem sem gengur hratt inn í húðina.

Hversu lengi endist 30 ml flaskan?
Það veltur á notkuninni. Til viðmiðunar má áætla að 30 ml flaska endist í 4 mánuði, miðað við að kremið sé borið á einu sinni á dag.

Má nota retínól á meðgöngu?
Ekki er ráðlagt að nota retinól á meðgöngu eða ef þú ert með barn á brjósti.

BL+ Retinol Cream 0.3%

16.900 kr

Svipaðar vörur