Hand Cream & Lip Balm Care
Tvær af okkar vinsælustu vörum saman í setti sem nærir, verndar og mýkir hendur og varir — hvar og hvenær sem er. Gjafasettið inniheldur: Hand Cream (50 ml) og Lip Balm (10 ml).
ÁVINNINGUR
SETTIÐ INNIHELDUR:
HAND CREAM
Einstaklega nærandi handáburður sem gengur fljótt inn í húðina; eykur raka, verndar og mýkir hendurnar.
LIP BALM
Verndandi varasalvi sem endurheimtir náttúrulega mýkt varanna og viðheldur raka þeirra. Gefur vörunum fallegan gljáa og heilbrigðara útlit
INNIHALDSEFNI
Lykilefni:
JARÐSJÓR BLÁA LÓNSINS er dýrmæt uppspretta nauðsynlegra steinefna sem efla og styrkja varnir húðarinnar. Uppleystu steinefnin gera húðina móttækilegri fyrir upptöku annarra virkra innihaldsefna svo heildarvirkni formúlunnar eykst.
ÖRÞÖRUNGAR BLÁA LÓNSINS hafa nærandi, andoxandi og endurnýjandi eiginleika. Einkaleyfisvarðir blágrænþörungarnir finnast í einstöku vistkerfi Bláa Lónsins en þeir örva, varðveita og vernda kollagenforða húðarinnar.
Öll innihaldsefni:
NOTKUN
- Notið eftir þörfum.
ALGENGAR SPURNINGAR
Hvert er geymsluþol varanna?
Eftir að þær hafa verið opnaðar, þá er geymsluþol þeirra sex mánuðir. Til að tryggja gæði varanna skal forðast að þær verði fyrir miklum hitabreytingum – hita og kulda.
Hjálpar Hand Cream naglaböndunum mínum?
Já, Hand Cream gengur hratt inn í húðina og skilur ekki eftir fituga áferð en formúlan er auðguð lífvirkum innihaldsefnum til að mýkja hendur og naglabönd og veita langvarandi raka.