Signature Masks - Travel
Sett með ferðastærðum af hinum einstöku lífvirku andlitsmöskum Bláa Lónsins. Settið inniheldur: Silica Mud Mask (30 ml), Algae Mask (30 ml), Mineral Mask (30 ml) og Lava Scrub Mask (30 ml).
ÁVINNINGUR
Settið inniheldur:
Hinn margrómaði hvíti andlitsmaski sem djúphreinsar og styrkir húðina. Gefur frísklegt yfirbragð og dregur úr sýnileika svitahola. Hentar öllum húðgerðum.
Öflugur rakagefandi andlitsmaski sem inniheldur lífvirkan og steinefnaríkan jarðsjó Bláa Lónsins. Byggir upp rakastig húðar, mýkir og gefur húðinni líflegra yfirbragð.
Nærandi andlitsmaski sem kallar fram náttúrulegan ljóma húðarinnar og dregur úr sýnileika fínna lína og hrukkna.
Endurnýjandi svartur leirmaski sem fjarlægir dauðar húðfrumur á mildan hátt og stuðlar að frumuendurnýjun, þökk sé hins lífvirka hrauns Bláa Lónsins
INNIHALDSEFNI
Sjá einstaka vörur fyrir öll innihaldsefni.
NOTKUN
- Hugaðu að þörfum húðarinnar í einu skrefi. Hannaðu þína persónulegu nálgun með margþættri notkun á einstökum andlitsmöskum Bláa Lónsins með því að bera maskana á mismunandi svæði andlitsins.
ALGENGAR SPURNINGAR
Hver er munurinn á fjórum andlitsmöskum Bláa Lónsins?
Við höfum dregið saman helstu eiginleika hvers andlitsmaska: Lava Scrub Mask fjarlægir dauðar húðfrumur og endurnýjar. Silica Mud Mask djúphreinsar og styrkir varnarlag húðarinnar. Mineral Mask veitir raka og endurlífgar. Algae Mask nærir og eykur ljóma.
Hvenær þarf ég andlitsmaska?
Andlitsmaskar eru góðir til að takast á við sértæk húðvandamál eða til að bæta almenna húðheilsu þar sem þeir innihalda mikið magn af virkum efnum, vítamínum og næringarefnum. Andlitsmaskar eru hannaðir til að mynda lag yfir húðinni. Það tryggir aukna upptöku virkra innihaldsefna þar sem innihaldsefnin fá lengri tíma í snertingu við húðina.
Hvert er geymsluþol varanna?
Eftir að þær hafa verið opnaðar, þá er geymsluþol þeirra sex mánuðir. Til að tryggja gæði varanna skal forðast að þær verði fyrir miklum hitabreytingum – hita og kulda.