Travel Essentials
Glæsilegt ferðasett sem inniheldur allt sem þú þarft svo húðin ljómi í ferðalaginu. Settið inniheldur BL+ Eye Serum (10 ml), Mineral Mask (30 ml) og Lip Balm (10 ml) ásamt taupoka.
ÁVINNINGUR
BL+ EYE SERUM
Augnserum sem veitir öflugan raka og dregur úr einkennum þreytu og þrota á augnsvæðinu.
MINERAL MASK
Rakagefandi andlitsmaski sem inniheldur lífvirkan og steinefnaríkan jarðsjó Bláa Lónsins. Léttur gelmaskinn veitir húðinni öfluga rakagjöf sem gerir húðina mýkri og ljómandi á nýjan leik.
LIP BALM
Næringarríkur varasalvi sem verndar og mýkir varirnar samstundis auk þess að innsigla raka. Varirnar fá fyllri og sléttari ásýnd.
INNIHALDSEFNI
BL+ COMPLEX örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar. Við hönnun á BL+ COMPLEX er notuð náttúruleg fosfólípíðferja til þess að koma einstakri blöndu af einkaleyfisvörðum örþörungum og kísil Bláa Lónsins djúpt niður í húðlögin til að hámarka virkni.
JARÐSJÓR BLÁA LÓNSINS endurnærir húðina með nauðsynlegum steinefnasöltum og eykur þannig heildarvirkni formúlunnar.
NOTKUN
Setjið kælandi rúllu BL+ Eye Serum undir miðja augabrúnina, rúllaðu að ytri augnkrók og haltu áfram undir augað í hálfhring. Notið yfir daginn til að fríska upp á þreytt eða þrútin augu.
Berið Mineral Mask á hreina húð. Leyfið að vera á húðinni í 10-20 mínútur eða yfir nótt.
Berið Lip Balm á varirnar eftir þörfum. Kreistið lítið magn beint á varirnar eða berðu á með fingurgómi.
ALGENGAR SPURNINGAR
Hvernig get ég forðast þurra „flugvélahúð“ á ferðalögum?
Til að hámarka vökvamagn líkamans skaltu drekka nóg af vatni fyrir flugið. Þegar þú ferð um borð í flugvélina og sest skaltu bera á þig Lip Balm og BL+ Eye Serum. Eftir flugtak skaltu setja þunnt lag af Mineral Mask á andlitið til að viðhalda rakastigi húðarinnar á meðan flugi stendur – ekki þarf að skola hann af.