



Glow Ritual
Hátíðarsett sem má hengja upp á tré, tilvalin gjöf til að gleðja. Tvær af okkar vinsælustu vörum, Silica Mud Mask og BL+ The Cream, veita húðinni fallega og ljómandi áferð.
Gjafasettið inniheldur: Silica Mud Mask (10 g) og BL+ The Cream (5 ml).
ÁVINNINGUR
SETTIÐ INNIHELDUR:
BL+ THE CREAM
Einstaklega nærandi og rakagefandi krem sem eykur þéttleika húðar og dregur úr ásýnd fínna lína. Hentar öllum húðgerðum.
SILICA MUD MASK
Hinn margrómaði hvíti andlitsmaski sem djúphreinsar og styrkir húðina. Gefur frísklegt yfirbragð og dregur úr sýnileika svitahola. Hentar öllum húðgerðum.
INNIHALDSEFNI
BL+ COMPLEX örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar.
KÍSILL BLÁA LÓNSINS hefur djúphreinsandi, náttúrulega leireiginleika sem draga óhreinindi úr húðinni og bæta yfirbragð hennar. Kísillinn er lífvirkt innihaldsefni sem gefur Bláa Lóninu sinn einkennandi bláa lit og hefur verndandi og styrkjandi áhrif á náttúrulegt varnarlag húðarinnar.
Sjá einstaka vörur fyrir öll innihaldsefni.
NOTKUN
- Notið BL+ The Cream morgna og kvölds, eftir hreinsun, á andlit og háls.
- Berið Silica Mud Mask ríkulega og jafnt yfir hreina húð. Forðist augnsvæðið. Látið bíða á húðinni í 5-10 mínútur. Skolið af með volgu vatni. Notið maskann eftir þörfum eða 2-3 sinnum í viku.
ALGENGAR SPURNINGAR
Hvenær þarf ég andlitsmaska?
Andlitsmaskar eru góðir til að takast á við sértæk húðvandamál eða til að bæta almenna húðheilsu þar sem þeir innihalda mikið magn af virkum efnum, vítamínum og næringarefnum. Andlitsmaskar eru hannaðir til að mynda lag yfir húðinni. Það tryggir aukna upptöku virkra innihaldsefna þar sem innihaldsefnin fá lengri tíma í snertingu við húðina.
Hvert er geymsluþol varanna?
Eftir að þær hafa verið opnaðar, þá er geymsluþol þeirra sex mánuðir. Til að tryggja gæði varanna skal forðast að þær verði fyrir miklum hitabreytingum – hita og kulda.