













Skin Saviors
Okkar eftirsóttustu vörur í glæsilegu gjafasetti. Þrjár kraftmiklar formúlur sem veita húðinni góðan raka ásamt sléttari og bjartari ásýnd. Byrjaðu á að djúphreinsa húðina með Silica Mud Mask. Fylgdu á eftir með BL+ The Serum til að veita húðinni djúpan raka og örva kollagenbirgðirnar. Lokaðu rútínunni með BL+ The Cream til að endurnæra og draga úr ásýnd fínna lína. Húðrútína sem endurnýjar, nærir og veitir húðinni sannkallaðan hátíðarljóma.
Settið inniheldur: BL+ The Cream (50 ml), BL+ The Serum (5 ml) og Silica Mud Mask (30 ml) með taupoka.
ÁVINNINGUR
SETTIÐ INNIHELDUR:
BL+ THE CREAM Einstaklega nærandi og rakagefandi krem sem eykur þéttleika húðar og dregur úr ásýnd fínna lína. Hentar öllum húðgerðum.
BL+ THE SERUM Öflug formúla sem gefur húðinni góðan raka og bjartara yfirbragð, ásamt því að draga úr litablettum og öðrum öldrunareinkennum húðar. Hentar öllum húðgerðum.
SILICA MUD MASK Hinn margrómaði hvíti andlitsmaski sem djúphreinsar og styrkir húðina. Gefur frísklegt yfirbragð og dregur úr sýnileika svitahola. Hentar öllum húðgerðum.
INNIHALDSEFNI
BL+ COMPLEX örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar.
KÍSILL BLÁA LÓNSINS hefur djúphreinsandi, náttúrulega leireiginleika sem draga óhreinindi úr húðinni og bæta yfirbragð hennar. Kísillinn er lífvirkt innihaldsefni sem gefur Bláa Lóninu sinn einkennandi bláa lit og hefur verndandi og styrkjandi áhrif á náttúrulegt varnarlag húðarinnar.
Sjá öll innihaldsefni á eftirtöldum vörusíðum:
NOTKUN
- Notið BL+ The Serum og BL+ The Cream morgna og kvölds, eftir hreinsun, á andlit og háls.
- Berið Silica Mud Mask ríkulega og jafnt yfir hreina húð. Forðist augnsvæðið. Látið bíða á húðinni í 5-10 mínútur. Skolið af með volgu vatni. Notið maskann eftir þörfum eða 2-3 sinnum í viku.
ALGENGAR SPURNINGAR
Hvenær þarf ég andlitsmaska?
Andlitsmaskar eru góðir til að takast á við sértæk húðvandamál eða til að bæta almenna húðheilsu þar sem þeir innihalda mikið magn af virkum efnum, vítamínum og næringarefnum. Andlitsmaskar eru hannaðir til að mynda lag yfir húðinni. Það tryggir aukna upptöku virkra innihaldsefna þar sem innihaldsefnin fá lengri tíma í snertingu við húðina.
Hvert er geymsluþol varanna?
Eftir að þær hafa verið opnaðar, þá er geymsluþol þeirra sex mánuðir. Til að tryggja gæði varanna skal forðast að þær verði fyrir miklum hitabreytingum – hita og kulda.