Það er Kringlukast - 20% afsláttur!

-20%

Winter Wonders

Vetrarsett fyrir andlit, augu og varir. Þrjár rakabombur sem draga úr þurrki og endurlífga húðina. Mineral Mask tryggir húðinni djúpan raka. BL+ Eye Cream endurnærir viðkvæmt augnsvæðið og dregur úr fínum línum. Lip Balm endurnærir varirnar. Hugulsöm gjöf sem hlúir vel að húðinni á köldum dögum.

Settið inniheldur: BL+ Eye Cream (15 ml), Mineral Mask (30 ml), og Lip Balm (10 ml).

15.900 kr (25.700 kr VIRÐI)
ÁVINNINGUR

Settið Inniheldur:

MINERAL MASK
Rakagefandi andlitsmaski sem inniheldur lífvirkan og steinefnaríkan jarðsjó Bláa Lónsins. Léttur gelmaski veitir húðinni öfluga rakagjöf sem gerir húðina mýkri og ljómandi.

BL+ EYE CREAM
Háþróað augnkrem sem sléttir, þéttir og verndar viðkvæmt augnsvæðið. Silkimjúkt og nærandi krem sem gengur hratt inn í húðina og veitir endurnýjað og ljómandi yfirbragð.

LIP BALM
Næringarríkur varasalvi sem verndar og mýkir varirnar samstundis auk þess að innsigla raka. Varirnar fá fyllri og sléttari ásýnd.

INNIHALDSEFNI

Lykilefni:

BL+ COMPLEX örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar.

JARÐSJÓR BLÁA LÓNSINS endurnærir húðina með nauðsynlegum steinefnasöltum og eykur þannig heildarvirkni formúlunnar.

Sjá öll innihaldsefni á eftirtöldum vörusíðum:

BL+ Eye Cream
Mineral Mask
Lip Balm

NOTKUN
  • Morgna og kvölds: Berið BL+ Eye Cream á hreina húð.
  • Berið Mineral Mask á hreina húð. Leyfið honum að vera á í 10-20 mínútur eða yfir nótt.
  • Berið á varirnar eftir þörfum. Kreistið lítið magn beint á varirnar eða berið á þær með fingurgómi.
ALGENGAR SPURNINGAR

Hvenær þarf ég andlitsmaska?

Andlitsmaskar eru góðir til að takast á við sértæk húðvandamál eða til að bæta almenna húðheilsu þar sem þeir innihalda mikið magn af virkum efnum, vítamínum og næringarefnum. Andlitsmaskar eru hannaðir til að mynda lag yfir húðinni. Það tryggir aukna upptöku virkra innihaldsefna þar sem innihaldsefnin fá lengri tíma í snertingu við húðina.

Hvert er geymsluþol varanna?

Eftir að þær hafa verið opnaðar, þá er geymsluþol þeirra sex mánuðir. Til að tryggja gæði varanna skal forðast að þær verði fyrir miklum hitabreytingum – hita og kulda.

Winter Wonders

15.900 kr

Vörur sem þér gæti líkað

Close dialog

Blue Lagoon Skincare

Fáðu 15% afslátt af stökum vörum með fyrstu pöntun

Please select your home region