FRÍ HEIMSENDING OG KAUPAUKI ÞEGAR VERSLAÐ ER FYRIR 9.900 EÐA MEIRA.

Karfa 0

Frábært! Þú færð fría heimsendingu You are 95 kr away from free shipping.
Engar fleiri vörur í boði til kaupa

Verð á vörum Fylgir frítt
Sendingarkostnaður, skattar og afsláttarkóðar eru reiknaðir við kaup

Karfan þín er tóm

The Iconic Facial

Endurnærandi gjafasett sem djúphreinsar, þéttir og styrkir húðina. Gjafasettið inniheldur: Silica Mud Mask (75 ml), BL+ The Cream (5 ml) ásamt maskalykli.

11.900 kr (18.000 kr VIRÐI)
ÁVINNINGUR

BL+ THE CREAM

Einstaklega nærandi og rakagefandi krem sem eykur þéttleika húðar og dregur úr ásýnd fínna lína. Hentar öllum húðgerðum.


SILICA MUD MASK

Hinn margrómaði hvíti andlitsmaski sem djúphreinsar og styrkir húðina. Gefur frísklegt yfirbragð og dregur úr sýnileika svitahola. Hentar öllum húðgerðum.


MASK SQUEEZER KEY

Lykillinn að því að kreista hvern einasta dropa úr áltúbunum okkar.

INNIHALDSEFNI

Lykilefni:   

BL+ COMPLEX örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar. Við hönnun á BL+ COMPLEX er notuð náttúruleg fosfólípíðferja til þess að koma einstakri blöndu af einkaleyfisvörðum örþörungum og kísil Bláa Lónsins djúpt niður í húðlögin til að hámarka virkni. Einstakt innihaldsefni á heimsvísu sem finnst einungis í BL+ húðvörulínunni. 

KÍSILL BLÁA LÓNSINS hefur djúphreinsandi, náttúrulega leireiginleika sem draga óhreinindi úr húðinni og bæta yfirbragð hennar. Kísillinn er lífvirkt innihaldsefni sem gefur Bláa Lóninu sinn einkennandi bláa lit og hefur verndandi og styrkjandi áhrif á náttúrulegt varnarlag húðarinnar.   

Öll innihaldsefni:

Silica Mud Mask, BL+ The Cream, Mask Key

NOTKUN

- Notið BL+ The Cream morgna og kvölds, eftir hreinsun, á andlit og háls.  

- Berið Silica Mud Mask ríkulega og jafnt yfir hreina húð. Forðist augnsvæðið. Látið bíða á húðinni í 5-10 mínútur. Skolið af með volgu vatni. Notið maskann eftir þörfum eða 2-3 sinnum í viku.  

-Rennið Mask Squeezer Key á áltúbuna og snúið svo öll varan náist auðveldlega út. Þegar áltúban er tóm geturðu farið með hana í endurvinnslu

ALGENGAR SPURNINGAR

Hvenær þarf ég andlitsmaska?  

Andlitsmaskar eru góðir til að takast á við sértæk húðvandamál eða til að bæta almenna húðheilsu þar sem þeir innihalda mikið magn af virkum efnum, vítamínum og næringarefnum. Andlitsmaskar eru hannaðir til að mynda lag yfir húðinni. Það tryggir aukna upptöku virkra innihaldsefna þar sem innihaldsefnin fá lengri tíma í snertingu við húðina. 

Hvert er geymsluþol varanna? 

Eftir að þær hafa verið opnaðar, þá er geymsluþol þeirra sex mánuðir. Til að tryggja gæði varanna skal forðast að þær verði fyrir miklum hitabreytingum – hita og kulda. 

 

The Iconic Facial

11.900 kr

Products you may like